Tímamót
Þetta er merkilegur dagur í lífi mínu…held ég. Þetta er í það minnsta í fyrsta skipti sem ég skrifa bloggfærslu. Mér hefur alltaf vaxið þetta svolítið í augum. Held að maður verði að vera svo skáldlegur, skrifa gott mál, fara rétt með, vera fyndin, pólitískur og ég veit ekki hvað og hvað…og þess vegna hef ég aldrei skrifað NEITT.
En núna er ég alveg staðráðin í að hugsa ekkert um þessar fyrirfram ákveðnu hindranir mínar heldur bara skrifa frá mínu fátæklega Dalvíkur hjarta og sjá hvert það leiðir mig. Í dag ber það hæst í vinnunni að ég er að fara til Grenivíkur að funda með stýrihóp í Markviss verkefni en Markviss er ákveðin hugmyndafræði til að vinna með þróun starfsmanna í fyrirtækjum. (Jeminn, mér finnst ég allt í einu fullorðin þegar ég sé hvað ég er að fara að bagsa í dag - ótrúlegt hvað tíminn flýgur og stingur mann svo í bakið þegar síst varir.)